top of page

GYNA MEDICA ER
LÆKNINGA- OG HEILSUMIÐSTÖÐ
FYRIR KONUR

Hjá GynaMEDICA vinnum við saman sem teymi læknis og hjúkrunarfræðings með það að markmiði að styðja, fræða og fylgja konum eftir á umbreytingartíma breytingaskeiðsins. 

 
Við bjóðum skjólstæðingum okkar stuðning og fræðslu um lífsstílsþætti s.s. svefn, næringu, hreyfingu og streitustjórnun þar sem sannað er að heildræn nálgun á breytingaskeiði hefur jákvæð áhrif á lífsgæði kvenna á þessum tíma í lífinu.

 

Þekking er máttur og valdefling til þess að konur geti tekið upplýsta ábyrgð á eigin heilsu.

Okkur er umhugað um þig og þína líðan og við erum hér fyrir þig.

GynaMEDICA Letterhead Lady in White_edited_edited_edited.png

Við bjóðum upp á heildræna fræðslu, ráðgjöf og meðferð fyrir konur á öllum aldri því kvenheilsa er okkar hjartans mál.. sem og okkar sál!

Við erum með séráherslu hvað varðar meðferð og lífstílstengda ráðgjöf fyrir konur á breytingaskeiði en sinnum einnig konum á öðrum lífsskeiðum. 


Okkar hjartans mál er að konur fái góða aðstoð og meðferð á öllum skeiðum lífsins en allar konur ganga í gegnum breytingaskeiðið sem er tímabil sem getur varað í 7-15 ár af ævi kvenna.

Breytingaskeiðs- tímabilið reynist sumum konum erfitt á meðan aðrar finna minna fyrir því en margar konur geta hlotið góðs af meðferð og ráðgjöf á því tímabili og allar konur geta hlotið góðs af lífstílstengdri fræðslu og ráðgjöf og auknu „heilsulæsi". 


Við hjá GynaMEDICA trúum á heildræna nálgun sem og persónulegar lausnir og berum virðingu fyrir ábyrgð og getu einstaklingsins.

Við styðjumst við nýjustu þekkingu og rannsóknir, fylgjum nýjustu klínísku leiðbeiningum og notum hormónauppbótarmeðferð sem í dag telst öruggust og með minnstar aukaverkanir.
 
Við leggjum mikið uppúr auðveldu aðgengi fyrir alla og nýtum til þess fjarfundatækni en einnig er hægt að koma til okkar á staðarfundi. 

_edited.png

Allar konur ganga
í gegnum breytingaskeiðið.

Einkenni geta verið mjög breytileg frá konu til konu og ekki er hægt að þróa eina staðlaða meðferð sem hentar öllum.

Við hjá GynaMEDICA leggjum áherslu á persónulega þjónustu þar sem einstaklingurinn er ávallt í fyrirrúmi. 

Kvenheilsa er okkar hjartans mál!

Breytingaskeiðið er ekki sjúkdómur heldur tímabil

sem allar konur ganga í gegnum á einhverjum tímapunkti. 

biðstofa stóll2 copy.jpg

Hvað get ég
gert núna?

Það besta sem við getum gert

fyrir sjálf okkur og aðra er að hlúa vel að eigin líðan og heilsu.

Breytingaskeiðið er ekki sjúkdómur en aukin fræðsla um breytingaskeiðið, mataræði og hreyfingu stuðlar að betri heilsu og líðan kvenna.

Breytingaskeiðið
er ekki Tabú!

Takk fyrir að skrá þig ;)

bottom of page