top of page

Breytingaskeiðið og áhrif þess á parsambandið

Um námskeiðið

Breytingaskeið kvenna felur í sér víðtækar lífeðlisfræðilegar og andlegar breytingar sem geta haft áhrif á líðan, hegðun, samskipti og nánd. Skortur á fræðslu um þetta tímabil getur leitt til misskilnings, spennu og fjarlægðar í parasamböndum. Þetta rafræna námskeið veitir faglega og aðgengilega fræðslu um hormónabreytingar á breytingaskeiði og eftir tíðahvörf, algeng einkenni og áhrif þeirra á sambandið. Áhersla er lögð á að hjálpa mökum að skilja ferlið, bregðast við af meiri innsýn og styðja án þess að ganga á eigin mörk. Námskeiðið er hagnýtt, byggt á klínískri reynslu og rannsóknum, og ætlað þeim sem vilja bæta skilning, samskipti og tengsl á þessu lífskeiði. Eftir námskeiðið hefur þátttakandi betri innsýn í breytingaskeiðið, skýrari viðbrögð og traustari grunn fyrir sambandið.

Verð

21.900 kr.
bottom of page