GJAFABRÉF fyrir þjónustu GynaMEDICA
32.900 ISK
Tími hjá bæði hjúkrunarfræðing & lækni.
Varðandi gjafabréf
fyrir ráðgjöf & meðferð
Vilt þú gefa þeim sem stendur þér nær tækifæri á að öðlast betri líðan yfir breytingaskeiðið?*
GynaMEDICA sérhæfir sig í breytingaskeiðinu. Farið er yfir þá þætti sem hafa áhrif á líðan á þessu tímabili í lífinu og gerð tillaga að heildrænni meðferð.
Innifalið er viðtal við hjúkrunarfræðing og lækni. Einnig fylgir aðgengi að þínum hjúkrunarfræðingi í 3 mánuði í gegnum rafræna eftirfylgni (fyrirspurnir).
Breytingaskeiðs-ráðgjöf og meðferð kostar ISK 32.900.-
Ath.
Til þess að bóka tíma þarf handhafi gjafabréfs að senda póst á bókanir@gynamedica.is
Númer gjafabréfs þarf að fylgja með bókun.
Gjafabréfið gildir í 1 ár frá útgáfudegi.
Ath.
*Hjá GynaMEDICA er hver skjólstæðingur einstakur og fær sína sérsniðnu ráðgjöf og meðferð frá hjúkrunarfræðingi og lækni. GynaMEDICA ábyrgist ekki að skjólstæðingar öðlist betri líðan í eða á eftir Breytingaskeiðs-ráðgjöf og meðferð þó svo að algengast er að líðan bætist við heildræna meðferð og úrræði.
Saman erum við með þér í liði í sköpun á þinni einstöku vellíðan og skipta margir þættir máli eins og Næring (N), Hreyfing (H), Svefn (S) og Streitustjórnun (S).
Hormónauppbótarmeðferð (HRT) getur hjálpað sumum ásamt fókus á fyrrnefnda þætti (NHSS) en er þó ekki endilega aðalúrræðið né það mikilvægasta fyrir einstaklinginn.