Fjarþjónusta skilmálar
Neðangreindir skilmálar gilda fyrir Fjarþjónustu Arigato ehf (GynaMedica.is)
Þjónusta Arigato ehf (GynaMedica.is) er háð eftirfarandi skilmálum.
Þegar þú notar vefsíðuna eða kaupir þjónustu samþykkir þú þessa skilmála, vinsamlegast lestu vel yfir þá. Þú getur sent tölvupóst á gynamedica@gynamedica.is ef þú hefur spurningar um skilmálana. Arigato ehf (GynaMedica.is) áskilur sér rétt til að breyta reglum og skilmálum án fyrirvara.
Þjónustan er rekin af Arigato ehf kt: 651021-0140, Brekkubæ 34, 110 Reykjavík.
Arigato ehf (GynaMedica.is) er ábyrgðaraðili vinnslu persónuupplýsinga sem fram fer í tengslum við þjónustuna. Hægt er að hafa samband með því að senda tölvupóst á gynamedica@gynamedica.is.
Notkunarskilmálar
Sérstakir notkunarskilmálar Arigato ehf (GynaMedica.is). Notandanum gert grein fyrir því að með því að samþykkja þessa skilmála þá er hann að veita upplýst samþykki fyrir vinnslu á persónuupplýsingum.
Persónuupplýsingar sem safnað er:
Persónugögn eru gögn sem hægt er að tengja við einstaklinga. Arigato ehf (GynaMedica.is) safnar og vinnur eftirfarandi persónugögn sem hægt er að tengja við þig:
Upplýsingar um þig (aðgangsupplýsingar) fela í sér eftirfarandi upplýsingar:
-
Nafn
-
Tölvupóst
-
Heimilisfang
-
Símanúmer
-
Kennitölu
-
Upplýsingar um tengilið einstaklings í þjónustu ef við á (nafn, síma, heimilisfang), t.d. forráðamaður eða eiginmaður/kona.
-
Heilbrigðisupplýsingar (Sjúkraskrá). Samkvæmt lögum um sjúkraskrár nr. 55/2009 skal heilbrigðisstarfsmaður sem fær sjúkling til meðferðar halda sjúkraskrá. Heilbrigðisupplýsingar eru upplýsingar sem verða til við meðferð sjúklings og heilbrigðisstarfsmanns.
-
Greiðsluupplýsingar.
Arigato ehf (GynaMedica.is) sér hvorki né geymir kortaupplýsingar hjá sér.-
Þegar þjónusta okkar er bókuð á heimasíðu og þú velur að greiða með greiðslukorti þá ert þú flutt á örugga greiðslusíðu hjá greiðslukortafélaginu Teya/Borgun
-
Þegar þú bókar þjónustu og velur “Greiða síðar” þá færð þú senda kröfu í heimabankann þinn í lok tímans sem þú bókaðir. Gjalddagi kröfunnar er 1 dagur og eindagi kröfunnar eru 10 dagar. Ef krafa er ekki greidd fyrir eindaga þá fer hún í innheimtu hjá Inkasso.
-
Meðhöndlun á persónugögnum
Arigato ehf (GynaMedica.is) notar persónuupplýsingar þínar eingöngu í þeim tilgangi að efna samning við þig um veitingu þjónustu og til að uppfylla lagaskyldu veitanda heilbrigðisþjónustu að halda sjúkraskrá um meðferðina.
Samkvæmt lögum um sjúkraskrár nr.55/2009 er óheimilt að eyða upplýsingum úr sjúkraskrá nema með samþykki landlæknis. Aðrar upplýsingar sem við geymum um þig eru geymdar eins lengi og nauðsyn ber til í þeim tilgangi sem þeirra var aflað. Einstaka upplýsingar geta verið geymdar lengur ef sérstakar reglur gilda t.d. skatta- eða bókhaldslög.
Arigato ehf (GynaMedica.is) notast við Köru til að safna og geyma persónugögn. Persónugreinanlegar upplýsingar, ásamt öðrum gögnum, eru dulkóðaðar í gagnagrunni með 256 bita dulkóðun.
Öll samskipti milli skjólstæðings og sérfræðings innan Köru eru dulkóðuð með SSL/TLS skírteini.
Tilgangur og heimild til vinnslu persónuupplýsinga
Tilgangur með vinnslu persónuupplýsinga og heimildir til vinnslu til fyrrnefndra gagna er eftirfarandi:
-
Vinnsla á upplýsingum um aðgangsorð og netfang eru nauðsynlegar til að beina skjólstæðingum rétt aðgengi að sérfræðing, geta haft samband við viðkomandi, sent út reikninga eða fylgt eftir meðferð. Heimildin er samþykki þess sem persónuupplýsingarnar eru um (hins skráða) fyrir vinnslunni í þágu eins eða fleiri tiltekinna markmiða.
-
Vinnsla á heilsuupplýsingum (sjúkraskrá) er nauðsynleg til að skrá niður upplýsingar sem snúa að meðferðinni og framgangi meðferðar. Heimildin er samþykki þess sem persónuupplýsingarnar eru um (hins skráða) fyrir vinnslunni í þágu eins eða fleiri tiltekinna markmiða. Einnig er veitendum heilbrigðisþjónustu skylt að halda sjúkraskrá og því er vinnsla nauðsynleg til að fullnægja lagaskyldu sem hvílir á þeim sem ákveður vinnsluna (ábyrgðaraðila).
-
Vinnsla á greiðsluupplýsingum er nauðsynleg til að skjólstæðingar geti greitt fyrir þjónustu Arigato ehf (GynaMedica.is) ef og þegar við á. Heimildin er samþykki þess sem persónuupplýsingarnar eru um (hins skráða) fyrir vinnslunni í þágu eins eða fleiri tiltekinna markmiða.
Rekstur heilbrigðisþjónustu
Arigato ehf (GynaMedica.is) er rekin með leyfi frá Embætti landlæknis. Allir veitendur heilbrigðisþjónustu hjá Arigato ehf (GynaMedica.is) eru með löggilt starfsleyfi frá Embætti landlæknis.
Skilmálar um greiðslu og afbókanir
Greiðsla er innt af hendi eftir hvert viðtal en þá er upphæð viðtalsins tekin út af kredit- eða debetkortinu sem var gefið upp við nýskráningu. Skjólstæðingur fær kvittun fyrir greiðslunni á heimasvæði inni í Köru.
Mörg stéttarfélög taka þátt í kostnaði vegna þjónustu sem veitt ef af Arigato ehf (GynaMedica.is). Kvittanir fyrir stéttafélög má finna á heimasvæði skjólstæðings.
Greiðslumáti
Hægt er að greiða með greiðslukorti eða velja greiða síðar þegar þjónusta er bókað á heimasíðu gynamedica.is.
Greiðslukvittun
Greiðslukvittun er send á þitt netfang þegar þú hefur staðfestir bókun þjónustu á bókunarsíðu gynamedica.is
Verð
Öll verð eru í íslenskum krónum og eru verð og upplýsingar um þjónustu birt með fyrirvara um innsláttarvillur. Við áskiljum okkur rétt til verðbreytinga án fyrirvara.
Afbókanir
Bókaðir tímar þurfa að vera afbókaðir með minnst 24 klst fyrirvara til að komast hjá gjaldtöku. Hægt er að afbóka viðtal með því að senda tölvupóst til bokanir@gynamedica.is.
Skróp
Fullt gjald er rukkað ef ekki er mætt í bókaðan tíma.
Ábyrgð þín
Þú berð ábyrgð á að muna eftir að mæta í viðtalstímann þinn.
Þú berð sömuleiðis ábyrgð á því að þú hafir næði á meðan þú ert í viðtalstíma í gegnum myndfundabúnað og að netsamband þitt og tækjabúnaður sé nægilega góður.
Síðast uppfært: 18. desember 2025



