top of page

Námskeið

AdobeStock_605112800.jpeg

Þyngdarstjórnun á mannamáli

Rafræn fræðsla um þyngdarstjórnun á miðjum aldri
 

Margar konur upplifa að líkaminn breytist á miðjum aldri án þess að þær skilji alveg af hverju. Það sem virkaði áður virðist ekki lengur skila sama árangri og breytingar á þyngd, orku, svefni og líðan geta komið á óvart.

Þessi rafræna fræðsla veitir faglega og aðgengilega innsýn í hvernig hormónar, efnaskipti, svefn, streita og daglegar venjur geta haft áhrif á líkamsþyngd og heilsu á miðjum aldri.
 

Áhersla er lögð á raunhæfa, gagnreynda og heildræna nálgun sem hjálpar konum að skilja betur hvað er að gerast í líkamanum og hvaða þættir geta stutt við betri líðan og heilbrigða þyngdarstjórnun.

Námskeiðið byggir á klínískri reynslu, rannsóknum og daglegri vinnu með konum á miðjum aldri.
 

Eftir námskeiðið hefur þátttakandi betri skilning á þeim breytingum sem geta orðið á líkamanum á miðjum aldri og hvaða þættir geta haft áhrif á þyngd, efnaskipti og vellíðan.

Hvað færðu út úr því að hlusta á námskeiðið?

Eftir að hafa hlustað á námskeiðið hefur þú:

  • Betri skilning á þeim breytingum sem geta orðið á líkamanum á miðjum aldri

  • Skýrari mynd af áhrifum hormóna, svefns, streitu og efnaskipta á þyngd og líðan

  • Raunhæfar hugmyndir um næringu, hreyfingu og daglegar venjur

  • Meiri innsýn í hvað styður við vellíðan og heilbrigða þyngdarstjórnun

  • Minni rugling og meiri ró gagnvart eigin líkama

  • Sterkari grunn til að byggja upp heilsu og lífsgæði til framtíðar
     

Markmiðið er aukinn skýrleiki, sjálfstraust og betri tenging við eigin líkama.

Hvernig er námskeiðið uppsett?

​​

  • Rafræn fræðsla – engin mæting

  • Aðgangur í 12 vikur

  • Námskeiðið tekur um 35 mínútur

  • Hægt að hlusta í köflum á þínum hraða

  • Aðgengilegt þegar þér hentar

  • Hagnýtt aukaefni fylgir

  • Verð 14.900 kr.

Fyrir hvern er námskeiðið?


Fyrir konur sem:

  • vilja skilja betur breytingar sem geta orðið á líkamanum á miðjum aldri

  • vilja fá skýrar og gagnreyndar upplýsingar um þyngdarstjórnun

  • vilja skilja betur áhrif hormóna, svefns og streitu á líðan

  • vilja nálgast heilsu sína af meiri sjálfsmildi og skilningi

  • vilja fá raunhæf verkfæri sem hægt er að innleiða í daglegt líf

  • vilja byggja upp heilbrigðan grunn fyrir framtíðarheilsu

harpa.avif
Kynning á kennara

Harpa Lind er hjúkrunarfræðingur með viðbótarnám í heilsumarkþjálfun og lífstílsvísindum, LMCA (Certificated Lifestyle Medicine Health Professional).  Meðfram starfi sínu hjá GynaMEDICA stundar Harpa meistaranám í heilbrigðisvísindum við Háskólann á Akureyri með áherslu á kvenheilsu.Eftir persónulega reynslu af breytingaskeiðseinkennum fékk Harpa brennandi áhuga á öllu sem viðkemur heilsu kvenna á miðjum aldri.

Harpa er meðlimur í Newson Education og hefur lokið viðurkenndri endurmenntunarþjálfun í meðferð á breytingaskeiði, Confidence in Menopause.

.

Harpa Lind býður einnig upp á heilsuhandleiðslu.

Frekari upplýsingar er að finna hér: https://www.gynamedica.is/heilsuhandleidsla

bottom of page