Verkir á breytingaskeiði
Í tilefni alþjóðlegs dags breytingaskeiðsins 18. október 2026

Þegar rætt er um breytingaskeiðið og tíðahvörf koma hitakóf, svefntruflanir og breytingar á blæðingum oft fyrst upp í hugann. En margar konur finna einnig fyrir verkjum en tengja þá ekki endilega við breytingaskeiðið.
Stífir liðir á morgnana, eymsli í líkamanum, verkir í mjöðmum, öxlum eða hnjám, mígreni sem hefur breyst, eldri verkir sem verða meira áberandi eða nýir verkir sem virðast koma án ástæðu.
Langvinnir verkir á miðjum aldri eru þema alþjóðlegs dags breytingaskeiðsins 2026. International Menopause Society (IMS) vill með því vekja athygli á því að verkir geta orðið meira áberandi í kringum breytingaskeiðið og tíðahvörf og að mikilvægt sé að gefa þeim meiri gaum.
Verkir eru algengir á breytingaskeiðinu
Langvinnir verkir eru verkir sem vara eða koma endurtekið fram í meira en þrjá mánuði. Þeir eru algengir meðal kvenna á miðjum aldri og fleiri en ein tegund verkja getur verið til staðar á sama tíma. Vöðva- og liðverkir eru sérstaklega algengir. Samkvæmt IMS upplifa næstum þrjár af hverjum fjórum konum vöðva- og liðverki á árunum fyrir tíðahvörf.
Það þýðir þó ekki að allir verkir á þessum árum séu vegna hormónabreytinga. Aldur, fyrri meiðsli eða sjúkdómar, svefnvandamál, streita, andleg líðan og lífsstíll geta einnig haft áhrif. Hormónabreytingarnar geta hins vegar verið einn hluti af myndinni.
Hvað hafa hormón með verki að gera?
Estrógen hefur áhrif víða í líkamanum, meðal annars á vöðva, liði og taugakerfið. Breytingar á estrógeni geta einnig haft áhrif á hvernig heilinn vinnur úr verkjaboðum.
Á sama tíma eru svefnvandamál, hitakóf og breytingar á líðan algengar á breytingaskeiðinu og geta þessir þættir einnig haft áhrif á hvernig konur upplifa verki. Samband hormónabreytinga og verkja er því flókið. Breytingar á estrógeni geta haft áhrif, en margir aðrir þættir spila einnig inn í.
Hjá sumum konum breytast verkir sem voru þegar til staðar, þeir geta ýmist aukist eða minnkað, en aðrar finna fyrir verkjum sem þær hafa ekki upplifað áður.
Svefn og verkir tengjast
Svefn er mikilvægur hluti af þessari mynd. Lélegur svefn getur aukið næmi fyrir verkjum og verkir geta aftur gert okkur erfiðara með svefn. Þegar við bætast þreyta, streita og önnur einkenni breytingaskeiðsins geta heildaráhrifin á líðan orðið töluverð. Þess vegna er mikilvægt að horfa ekki eingöngu á verkinn sjálfan heldur einnig á svefn og önnur einkenni sem konan er að glíma við.
Hvernig birtast verkirnir?
Algengastir eru vöðva- og liðverkir, til dæmis í öxlum, hnjám, mjöðmum, hálsi eða baki. Stífleiki, sérstaklega á morgnana, er einnig algengur. IMS vekur einnig athygli á mígreni, grindarverkjum og útbreiddum verkjum sem geta farið saman við þreytu, lélegan svefn og einbeitingarerfiðleika. Fleiri en ein tegund verkja getur verið til staðar samtímis.
Eru verkirnir bara hluti af því að eldast?
Nýir verkir á miðjum aldri eiga ekki sjálfkrafa að vera afgreiddir sem „bara aldurinn“, en þeir eiga heldur ekki sjálfkrafa að vera útskýrðir með breytingaskeiðinu. Verkir á miðjum aldri geta átt sér margar skýringar, en mikilvægt er að hafa breytingaskeiðið í huga sem einn mögulegan áhrifaþátt og gefa verkjum þann gaum sem þeir eiga skilið.
Ef verkir eru nýir, hafa breyst eða eru farnir að hafa áhrif á svefn, hreyfingu, vinnu eða daglegt líf er mikilvægt að ræða þá við heilbrigðisstarfsfólk.





Comments