top of page

Verkir á breytingaskeiði, hvað er til ráða?

5 days ago
3 min read

Í tilefni alþjóðlegs dags breytingaskeiðsins 18. október 2026

Í fyrra bloggi fjölluðum við um verki sem geta orðið meira áberandi á breytingaskeiðinu og hvernig hormónabreytingar geta verið einn hluti af þeirri mynd.

Langvinnir verkir á miðjum aldri eiga sér oft fleiri en eina útskýringu og því er sjaldnast ein lausn sem hentar öllum. International Menopause Society (IMS) leggur áherslu á heildræna nálgun þar sem horft er til þeirra ólíku þátta sem geta haft áhrif á verki og líðan.


Hreyfing skiptir máli

Regluleg hreyfing, og sérstaklega styrktarþjálfun, er eitt það mikilvægasta sem konur geta gert til lengri tíma þegar kemur að vöðva- og liðverkjum. Styrktarþjálfun hjálpar til við að viðhalda vöðvamassa, styrk og hreyfigetu, sem verður sífellt mikilvægara með hækkandi aldri. Almenn dagleg hreyfing og þolþjálfun styðja einnig við heilsu og líðan. Það þarf þó ekki að fara úr engu í allt. Mikilvægara er að finna hreyfingu sem hentar, auka álag eftir getu og leggja áherslu á reglubundna hreyfingu til lengri tíma. Lífsstílsbreytingar þurfa líka tíma, áhrifin koma yfirleitt smám saman en ekki á einni nóttu.


Ekki gleyma svefninum

Ef verkir og svefnvandamál fara saman er mikilvægt að horfa á hvort tveggja.

Lélegur svefn getur ýtt undir verki og verkir geta aftur gert okkur erfiðara fyrir að sofa. Að bæta svefn getur því verið mikilvægur hluti af því að bæta almenna líðan þegar verkir eru til staðar.

Streita getur einnig haft áhrif á verkjaupplifun. Að finna leiðir til að draga úr streitu og styðja við endurheimt getur því skipt máli, til dæmis með hreyfingu, slökun, jóga, öndunaræfingum eða núvitund.


Næring – heildarmyndin skiptir mestu

Góð næring er mikilvægur hluti af heilsu á miðjum aldri, en engin ein fæðutegund eða fæðubótarefni er töfralausn við langvinnum verkjum.

IMS varar sérstaklega við svokölluðum „töfralausnum“ sem markaðssettar eru við verkjum á breytingaskeiðinu. Lítið er um rannsóknir sem styðja virkni margra fæðubótarefna og detox-efna sem markaðssett eru við verkjum á breytingaskeiðinu. Áherslan ætti frekar að vera á fjölbreytt, prótín- og trefjaríkt mataræði sem styður við almenna heilsu.


En hvað með hormónameðferð?

Estrógen hefur áhrif víða í líkamanum, meðal annars á vöðva, bein, liði og taugakerfið. Hormónameðferð getur dregið úr ýmsum einkennum breytingaskeiðsins og hjá sumum konum getur hún einnig haft jákvæð áhrif á hvernig þær upplifa verki. Rannsóknir hafa þó ekki sýnt að hormónameðferð ein og sér sé áreiðanleg meðferð við langvinnum verkjum.

Hafa þarf í huga að hormónameðferð þarf að vera einstaklingsmiðuð. Ekki hentar sama tegund, skammtur eða samsetning öllum og stundum þarf að aðlaga meðferðina út frá einkennum, svörun og þörfum hverrar konu. Þess vegna skiptir máli að horfa á heildarmyndina og meta meðferð út frá einkennum og heilsufari hverrar konu fyrir sig.


Stundum þarf fleiri en eina nálgun

Langvinnir verkir geta þurft fleiri en eina tegund meðferðar. Sjúkraþjálfun getur til dæmis hjálpað við vöðva-, lið- og grindarverki og stundum getur lyfjameðferð einnig átt við.

Hugræn atferlismeðferð og aðrar sálfræðilegar nálganir geta hjálpað við að takast á við áhrif langvinnra verkja á daglegt líf. Það þýðir ekki að verkirnir séu „í huganum“, heldur að langvinnir verkir geta haft áhrif á marga þætti lífsins og meðferðin þarf oft að taka mið af því.


Heilsan til framtíðar

Breytingaskeiðið getur verið gott tækifæri til að staldra við og huga að heilsunni til framtíðar.

Hreyfing og styrkur, góður svefn, næring, streitustjórnun og félagsleg tengsl eru allt þættir sem geta stutt við heilsu og líðan. Fyrir sumar konur getur einstaklingsmiðuð hormónameðferð einnig verið mikilvægur hluti af heildarmyndinni, ásamt annarri viðeigandi meðferð og stuðningi heilbrigðisstarfsfólks þegar þess er þörf.


Markmiðið er ekki að finna eina töfralausn heldur að finna þær leiðir sem saman geta dregið úr áhrifum verkja, bætt líðan og stutt við heilsu til framtíðar.


 
 
 

Comments


bottom of page