top of page

Heilaheilsa og kvenhormón




Breytingaskeiðið er náttúrulegt ferli sem allar konur ganga í gegnum yfirleitt á aldrinum 40-50 ára, stundum fyrr og stundum seinna. Um er að ræða 7-10 ára tímabil áður en konur hætta á blæðingum. Meðalaldur kvenna sem hætta á blæðingum er um 51 árs. Þegar eitt ár er liðið frá síðustu blæðingum eru konur komnar í tíðahvörf.

Um 30% kvenna upplifa mjög truflandi einkenni á breytingaskeiðnu sem skerða lífsgæði. Einkennalisti | GynaMEDICA.is


Dr. Lisa Mosconi  er sérfræðingur í taugavísindum og hefur lagt mikla vinnu í rannsóknir á heila kvenna á breytingaskeiðinu og í kringum tíðahvörf. Rannsóknir Dr. Mosconi hafa sýnt mjög áhugaverðar niðurstöður um það hvaða breytingar eiga sér stað í kvenheilanum á þessu lífsskeiði. Dr. Mosconi leggur áherslu á hvernig konur geta borið ábyrgð á eigin heilsu á þessu tímabili í lífinu.


Estrogen og heilaheilsa: 

­Kvenhormónin okkar estrogen, prógesterone og testósterone eru framleidd í eggjastokkunum. Á breytingaskeiðinu dvínar starfsemi eggjastokkanna og lýkur svo eftir tíðahvörf. Það er mikilvægt að átta sig á að á öllum lífsskeiðum kvenna hefur estrogen svo miklu víðtækari áhrif heldur en að vera bara kynhormón.

 

Allar frumur líkamans eru með estrógenviðtaka sem segir okkur að estrogen hefur hlutverk alls staðar í líkamanum.


Sambandið á milli heila og breytingaskeiðsins/tíðahvarfa:

Dr. Mosconi hefur sýnt fram á það með rannsóknum sínum að kvenhormónaflöktið  sem verður á breytingaskeiðinu getur haft áhrif á heilastarfsemi kvenna á ákveðnu tímabili. Lækkun á estrogen hormóninu getur haft mikil áhrif á andlega líðan og vitsmunalega getu kvenna í kringum breytingaskeiðið sem lýsir sér í auknum líkum á kvíða, depurð, skapsveiflum, minnisvanda og einbeitingarskorti.


Dr. Mosconi segir estrogen virka eins og bensín fyrir heilann.


Heilinn notar um 20% af heildarhitaeiningunum okkar og orkugjafi heilans er kolvetni/glúkósi. Heilinn þarf glúkósa til þess að starfa almennilega. Kvenhormónið estrógen tekur þátt í að sjá heilanum fyrir aðalnæringarefninu sínu glúkósa. Með því hlutverki hefur estrógen áhrif á andlega líðan og vitsmunalega getu hjá konum.

Þegar estrogen gildin minnka á breytingaskeiði minnkar bensínið á tankinum (heilanum). Þetta getur haft áhrif á það hvernig heilinn vinnur úr kolvetnunum/glúkósanum,  sem síðan getur haft í för með sér að konur upplifi einkenni á borð við heilaþoku, minnisvanda og andlega vanlíðan.

 

Áhrif lífsstíls á heilaheilsu:

Samkvæmt Lisu Mosconi getum við haft áhrif á heilaheilsuna okkar með lífsstílnum. Regluleg hreyfing, nægur svefn, streitustjórnun og vitsmunaleg örvun eru allt þættir sem geta stutt við heilaheilsuna okkar.

Dr. Mosconi leggur sérstaka áherslu á næringu. Mataræði sem inniheldur Omega 3 fitusýrur og andoxunarefni er mikilvægt.

Dökkgrænt grænmeti, ber, feitur fiskur, hnetur og heilkorn er matur sem sýnt hefur verið fram á að geti minnkað líkurnar á vitrænni skerðingu.  Miðjarðarhafsmataræðið og þarmaflóran (gynamedica.is)


Hlutverk hormónauppbótarmeðferðar HRT:

Í sumum tilfellum getur HRT meðferð verið hjálpleg fyrir konur sem eru að upplifa truflandi einkenni á breytingaskeiði. Mikilvægt er að hver og ein kona taki upplýsta ákvörðun um hvort sé þörf á meðferð með heilbrigðisstarfsmanni sem er vel að sér í HRT meðferð.


Dr Lisa Mosconi hefur með rannsóknum sínum varpað ljósi á það hversu mikilvæg tengingin er á milli kvenhormóna og heilaheilsu. Það er mikilvægt fyrir konur sem eru að ganga í gegnum breytingaskeiðið að huga vel að heilaheilsunni með heilbrigðum lífsstíl og mögulega skoða hvort þær hafi gagn af hormónauppbótarmeðferð/HRT.


Þegar vel er hugað að þessum þáttum eru meiri líkur á því að við bætum við fleiri gæðaárum við lífið.


Dr Lisa Mosconi hefur gefið út tvær áhugaverðar bækur um heilaheilsu:

 

Heimildir:

Brain food, 2019, Lisa Mosconi

XX Brain, 2022, Lisa Mosconi

Estrogen Matters, 2018, Avrum Blooming


 

 

924 views0 comments
bottom of page