Lichen sclerosus- hvað er það?
Updated: 24 hours ago

Lichen sclerosus, oft skammstafað LS, er langvinnur bólgusjúkdómur í húð sem leggst oftast á ytri kynfæri, svo sem skapabarma, sníphettu, spöng og stundum húðina kringum endaþarm. Sjúkdómurinn getur komið fram á öllum aldri en er algengastur hjá konum eftir tíðahvörf. Hann er líklega algengari en áður var talið og getur farið lengi fram hjá bæði konum og heilbrigðisstarfsfólki.
Algengustu einkennin eru þrálátur kláði, sviði, eymsli eða verkir á ytri kynfærum. Kláðinn getur verið sérstaklega áberandi á nóttunni. Húðin getur orðið ljós eða hvítleit, viðkvæm og sprungið eða blætt við lítið álag. Einnig geta myndast marblettir eða litlar blóðblöðrur. Sumar konur finna fyrir sviða við þvaglát, óþægindum við hægðir eða verkjum við samfarir.
Með tímanum getur myndast örvefur sem breytir útliti og byggingu svæðisins, til dæmis með samgróningum við sníp, minnkun innri skapabarma eða þrengingu við leggangaop. Þetta getur haft áhrif á þvaglát, kynlíf og dagleg lífsgæði. Einkennin eru þó mismikil og sumar konur finna lítið eða ekkert fyrir sjúkdómnum þótt breytingar sjáist við skoðun.
Orsök LS er ekki að fullu þekkt. Sjúkdómurinn er ekki smitandi, smitast ekki við kynlíf og stafar hvorki af skorti á hreinlæti né ofnæmi. Talið er að truflun í ónæmiskerfinu geti átt þátt í sjúkdómnum og LS kemur oftar fram samhliða ákveðnum sjálfsofnæmissjúkdómum, meðal annars skjaldkirtilssjúkdómum. Hormónaumhverfi gæti haft áhrif á húð og einkenni, en LS er ekki einfaldlega afleiðing estrógenskorts. Frekari rannsókna er þörf til að skilja hlutverk kynhormóna í tilurð og þróun sjúkdómsins.
Greining og meðferð: Greining LS byggist yfirleitt á sjúkrasögu og nákvæmri skoðun ytri kynfæra. Stundum þarf að taka vefjasýni, sérstaklega ef greiningin er óljós, útlitið ódæmigert, meðferð skilar ekki væntanlegum árangri eða breyting vekur grun um forstig eða krabbamein.
Meginmeðferð við LS er mjög öflugt barksterasmyrsl sem borið er á sjúka húðsvæðið samkvæmt nákvæmum leiðbeiningum heilbrigðisstarfsfólks. Meðferðin dregur úr bólgu og einkennum og getur komið í veg fyrir frekari örmyndun og varanlegar breytingar.
Smyrslið er yfirleitt notað daglega í upphafi en þegar stjórn hefur náðst á sjúkdómnum er dregið úr tíðni notkunarinnar. Flestar konur þurfa síðan reglulega og einstaklingsmiðaða viðhaldsmeðferð til langs tíma. Rétt notuð barksterasmyrsl eru örugg við LS og ekki ætti að hætta meðferð vegna ótta við húðþynningu án samráðs við heilbrigðisstarfsfólk.
Konur á breytingaskeiði eða eftir tíðahvörf geta jafnframt verið með þvag- og kynfæraheilkenni tíðahvarfa, skammstafað GSM. GSM tengist minnkandi estrógenáhrifum og getur meðal annars valdið þurrki, sviða, kláða, eymslum og viðkvæmri húð ásamt þvagfæraeinkennum.
Ef grunur er um GSM einkenni samhliða LS, getur staðbundið estrógen í leggöng eða við leggangaop dregið úr þeim einkennum og bætt ástand vefjanna. Estrógen meðhöndlar hins vegar ekki LS-sjúkdóminn sjálfan og kemur ekki í stað barksterameðferðar.
Ilmefnalaus mýkjandi krem eða smyrsl geta mýkt og verndað húðina. Nota má viðeigandi mýkjandi vöru í stað sápu og sem varnarlag fyrir þvaglát ef þvagið veldur sviða. Einnig er ráðlegt að forðast sápu, freyðibað, ilmefni, blautklúta, talkúm og aðrar vörur sem geta ert svæðið. Skolflaska með volgu vatni getur minnkað sviða við þvaglát.
LS getur haft veruleg áhrif á líkamsímynd, kynlíf, sambönd og andlega líðan. Kvíði, einangrun og ótti við verki eða krabbamein eru raunverulegar afleiðingar sem eiga skilið viðurkenningu og stuðning. Ráðgjöf, kynlífsráðgjöf eða jafningjastuðningur getur því verið mikilvægur hluti heildrænnar þjónustu.
Lítil en mikilvæg tengsl eru milli LS og krabbameins í ytri kynfærum. Góð sjúkdómsstjórn og reglulegt eftirlit draga úr áhættunni en útiloka hana ekki. Nýtt sár, hnútur, þykknun, blæðing eða breyting sem grær ekki þarf alltaf að meta af lækni.
Snemmgreining, viðeigandi meðferð og regluleg eftirfylgd geta komið í veg fyrir varanlegar breytingar. Með réttri meðferð er yfirleitt hægt að halda LS vel í skefjum og bæta lífsgæði verulega.
Nánari upplýsingar og stuðningur:Á vef Lichen Sclerosus Support Network má finna ítarlegt fræðsluefni á ensku, reynslusögur og upplýsingar um jafningjastuðning. Vefurinn er rekinn af bandarískum stuðningssamtökum og kemur ekki í stað einstaklingsmiðaðrar greiningar eða meðferðar hjá heilbrigðisstarfsfólki. Ef þú telur þig vera með LS eða einhvern sem þú þekkir þá ráðleggjum við að leita til næsta kvensjúkdómalæknis.
Heimildir:
British Society for the Study of Vulval Disease. (e.d.). What to do at a lichen sclerosus follow-up visit. https://bssvd.org
Day, T., Mauskar, M. og Selk, A. (ritstj.). (2024). Lichen sclerosus: ISSVD practical guide to diagnosis and management. Ad Médic. https://doi.org/10.59153/adm.ls.001
Halonen, P., Jakobsson, M., Heikinheimo, O., Riska, A., Gissler, M. og Pukkala, E. (2017). Lichen sclerosus and risk of cancer. International Journal of Cancer, 140(9), 1998–2002. https://doi.org/10.1002/ijc.30621
Lewis, F. M., o.fl. (2018). British Association of Dermatologists guidelines for the management of lichen sclerosus, 2018. British Journal of Dermatology, 178(4), 839–853. https://doi.org/10.1111/bjd.16241
Popa, A., o.fl. (2024). Vulvar lichen sclerosus: Navigating sex hormone dynamics and pioneering personalized treatment paradigms. Journal of Personalized Medicine, 14(1), 76. https://doi.org/10.3390/jpm14010076
Ruiz-Carter, K. (2025, 21. júlí). Lichen sclerosus overview. Lichen Sclerosus Support Network. https://lssupportnetwork.org/lichen-sclerosus-overview/
Wallace, H. J. (1971). Lichen sclerosus et atrophicus. Transactions of the St. John’s Hospital Dermatological Society, 57(1), 9–30.





Comments