top of page

Þegar breytingaskeiðið hefur áhrif á parsambandið

Updated: Feb 6

Breytingaskeið kvenna hefur verið töluvert í umræðunni síðustu ár. Minna er hins vegar rætt um hvernig þetta skeið getur haft áhrif á parsambandið og á makann.


Margar konur upplifa á þessum tíma breytingar á líðan, orku, svefni, sjálfsmynd og nánd. Hormónabreytingar geta haft víðtæk áhrif á líkamann og hugann og einkenni eins og þreyta, kvíði, pirringur, minni kynhvöt eða fjarlægð geta komið fram.


Fyrir makann getur þetta verið ruglingslegt. Sambandið sem áður var auðvelt og hlýtt getur allt í einu orðið flóknara án þess að báðir skilji af hverju.

Í starfi mínu heyri ég oft maka segja:

 „Ég veit að henni líður ekki vel en ég veit ekki hvað ég á að gera.“


Skortur á fræðslu um breytingaskeiðið getur leitt til misskilnings. Makar geta upplifað höfnun, fjarlægð eða óöryggi og jafnvel tekið breytingarnar persónulega. Það sem margir átta sig ekki á er að þetta snýst sjaldnast um skort á vilja, ást eða áhuga, heldur um raunverulegar og algengar lífeðlisfræðilegar og sálrænar breytingar.

Þegar maki fær innsýn í hvað er að gerast í líkamanum, breytist oft viðbragðið. Skilningur dregur úr spennu. Misskilningur minnkar. Samtöl verða mýkri. Það opnast rými fyrir meiri ró, hlýju og tengingu.


Það skiptir líka máli að muna að makinn er sjálfur í ferli. Þegar samband breytist hefur það áhrif á báða. Til að geta verið stöðugur stuðningur þarf makinn einnig að huga að eigin orku, mörkum og vellíðan. Það er ekki eigingjarnt heldur forsenda heilbrigðs sambands.


Þess vegna bjó ég til rafræna námskeiðið Breytingaskeiðið og áhrif þess á parsambandið. Námskeiðið er ætlað mökum kvenna á breytingaskeiði sem vilja skilja betur hvað er að gerast, fá skýrari mynd af áhrifum hormónabreytinga og finna leiðir til að vera til staðar af meiri skilningi og öryggi.

Námskeiðið byggir á rannsóknum og klínískri reynslu, er talað á mannamáli og sett fram með virðingu fyrir þessu flókna tímabili í lífi parsambanda. Það snýst ekki um fullkomnar lausnir heldur um skilning sem styrkir tengsl.

Stundum breytir eitt nýtt sjónarhorn miklu. Ekki af því að allt verði auðvelt heldur af því að það verður skýrara.


Nánari upplýsingar um námskeiðið má finna á heimasíðu Gynamedica hér


Höfundur: Sonja Bergmann, hjúkrunarfræðingur og fjölskyldufræðingur með sérþekkingu á breytingaskeiði kvenna og áhrifum þess á líðan og parsambönd.

 
 
 

Comments


bottom of page